Vitleysingarnir í árgangi '85

En við erum nú alveg ágæt

05.11.2008 00:01:25 / siglo_85

Var lengi að finna lykilorðið!!

Það eru að koma jól bráðum!! Eins og allir hljóta að vita.. og margir sem koma á sigló í jólafríinu (öruglega í kringum 18-19 desember).. Gunni var að stinga upp á því að hafa smá hitting heima hjá sér í kringum jólin og mér datt í hug að það væri kannski sniðugt að hafa hann helgina fyrir jól (20-21 eitthvað svoleiðis held ég)..  (Hvað segir Gunni??) Þar sem að það eru margir sem að fara aftur úr bænum fyrir áramótin..!

Það er öruglega ekkert mál að grafa upp gamla árshátíðarvideoið síðan í 10. bekk og við gætum horft á það ef gunni á video og hlegið af því hvað við vorum ógeðslega asnaleg!!

Held að það sé málið að setja bara dagsettningu á þetta og svo koma bara þeir sem að koma! Og það skal bara verða hittingur núna..

Kv. Inga ;)


» 25 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 12:31:52 / siglo_85

Hittingur já eða nei?

Voru eitthverjir sendir í það að undirbúa hitting í sumar? Ef svo er þá hljóta þau að vera byrjuð og kannski komin með dagsetningu á þetta eða hvað?
Verður hittingur í sumar?


» 15 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 20:26:00 / siglo_85

Innilegar samúðarkveðjur

Fyrir hönd bekkjarins vil ég senda Tótu og Dodda innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls móður þeirra 22. apríl síðastliðinn.

Inga Margrét



» 8 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 23:46:06 / siglo_85

Nýjar gamlar myndir :)

Jæja.. Fyrst ég er búin að vera veik í viku eða eitthvað og er búin að horfa á allar myndir og þætti og gera allt sem hægt er að gera þá ákvað ég að taka myndir af gömlu bekkjarmyndunum mínum á digital vélina og skella þeim hingað inn á.. Þær eru sem sagt þarna í "Myndasöfn".. Sumar eru svolítið óskýra og stundum glampar smá á þær en annars eru þær í lagi held ég.. Allavega hægt að skoða þær..

Skora á fleiri að taka myndir af gömlu myndunum og skella þeim inn.. tekur engann tíma.. :)

Kv. Inga Margrét


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 14:39:50 / siglo_85

Hittingur

8)8) Jæja Þeir sem vilja koma í Grímsey í sumar vinsamlegast kommenta.
Ég verð að fá að vita þetta með góðum fyrirvara uppá að fá Björgunarbáta og vesti lánað svo að þetta sé nú allt löglegt hjá okkur veit ekki með ykkur en mig langar rosalega að fara út í þessa litlu eyju og skoða hana.
Alltaf gott að fá lika hjálp við að skipuleggja þetta ég er nú ekki beint vanur að skipuleggja svona hittinga eða svoleiðis en þeir sem vilja koma með kommenta hér
Kveðja Gunni

» 10 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 20:44:25 / siglo_85

Þeir sem sjá ekki..

<---------Sjáið.. myspace komið hérna inn á..

 

Látið ykkar nú inn líka 


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 13:21:03 / siglo_85

Jæj þá eru þessi f...... jól búinn

Jæja litlu Englabossarnir ykkar þá eru jólinn búinn þá eru það bara páskarnir næst við gætum nú hist og haldið svona utivistardag einhverstaðar uti á Hóli eða ekkað vélsleðar og snjóþotur eiga mjög góða samleið. Annars er bara ekkert að frétta jú heyriði má ekki gleyma aðalmálinu!! Ég takið eftir Ég ok og Snævar Rústuðum JÓNI INGA í pool í gær og hann fór bara heim að grenja en ég og snævar erum enn i sigurvímu Snævar 

GÓÓÓÐUR

Bið að heilsa Gunni pool MASTER


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 00:18:03 / siglo_85

Gleðileg jól

Gleðileg jól öll saman og farsælt komandi ár..



» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2007 17:26:49 / siglo_85

:Það var mikið

jæja eins og flestir vita þá var ég að taka þessi skipstjórnarréttindi um daginn (pungaprófið;) og viti menn kallinn bara náði þessu með góðar einkannir í þessum fögum 9-10 og bara æðislegt. það er lika kominn tími til að maður geti farið að róa á sínum eiginn bát sjálfur þurfa ekki að vera með kallinn alltaf með útaf réttindunum.En var bara svona örlitið a monta mig ekkert mikið bar p´´inu en jæja bið bara að heilsa ykkur í bili

kveðja Gunni: klikk:

 

P.s. bæta smá við hérna... Vil óska þeim sem áttu afmæli í þessum mánuði til hamingju með daginn.. Una Dagný átti afmæli 2. des og Fjóla 13. des...

Kv. Inga 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 00:10:09 / siglo_85

Myndir komnar!

Hæ.

Vildi bara láta ykkur vita að ég er búin að vera ógeðslega dugleg að setja inn gamlar myndir,þið ættuð að sjá það neðst á síðunni til vinstri, njótið vel:)

Ég skora á ykkur að gera slíkt hið sama og skella inn myndunum sem þið eigið frá grunnskóla,bara gaman að þessu:) 

 

Kveðja Íris 


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 17:14:59 / siglo_85

Kallinn er bara að farast úr stressi

jæja kæru sambekkingar nú á morgun er ég að fara í próf í 30 tonna skipsréttunum (Púngaprófi)  þetta er pínu vangefið fyrir mig því að siðasta próf sem ég tók það vara bara bílprófið annað en þið hin sprenglærðukvikindin en sem er bara gott mál:D þannig er þetta nú bara en ég er í fjarnámi frá Höfn í Hornafirði en má taka prófið hérna í gagganum og mesta snilldinn við það allt saman er að engin annar en Pétur Gamli Garðars mun sitja yfir mér þannig að ég sem hélt ég færi aldrei þangað inn aftur á minni ævi:lol:. En ég vona nú bara að þetta verði ekki í líffræðistofuni því þá er það bókað mál að ég fell hehe en þetta er orðið gott.

veriði duglegri að blogga hérna ég bý á sigló og það virðist vera mest um að vera hérna eða hvað, en þetta getur ekki verið það, þetta stafar bara af eintómri leti svona nú drullist af stað og gerið ekkað að viti hérna Gunni STRESSAÐI ÚT


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 20:43:02 / siglo_85

Afmælisbörn Mánaðarins: Til hamingju.

Eva María Þórhallsdóttir

 

Til Hamingju með afmælið 9. nóvember

 

------------------------------------------------------------------- 

 

Rögnvaldur Egilsson

 

Til Hamingju með afmælið 19. nóvember n.k.

 ------------------------------------------------------------------------

Gunnar Þór Óðinsson

 

Til Hamingju með afmælið 27. nóvember n.k. 

 

 

KV. Inga Margrét 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 13:40:38 / siglo_85

Jæja ágæta fólk úr þessum fallegasta árgangi sem Sigló hefur alið af sér

þetta er lengsti titill í sögu bloggs á Íslandi en það er nú allt í lagi...

 

flestir vita líklega hvað ég hef verið að brasa en það er til dæmis að fyrst eftir tíunda bekk fór ég að stúdera á félagsfræðibraut í Menntaskólanum á Akureyri.. þaðan útskrifaðist ég svo 2005 og fór í framhaldi að því að læra Heimspeki,hagfræði og stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. ég mun útskrifast þaðan í júní á næsta ári og mun klára allt nám núna um áramót en skrifa b.a. ritgerðina mína eftir áramót, og hana mun ég líklega gera hjá kærustunni minni á Neskaupstað.

annars hefur lífið bara verið ansi tilburðalítið síðan ég sat í bekk með ykkur með almenn fíflalæti, skrymti á námslánum og bý á Bifröst, það er fínt ansi fínt...

 kv. Snævar


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 20:48:54 / siglo_85

...

...er fólk strax búið að gefast upp a þessari síðu?

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 13:08:45 / siglo_85

Sagan af mér

Hæ allir.

Ég vildi endilega troða mér með í þennan hóp þar sem ég eyddi 7 árum í skóla með ykkur og þykir vænt um þennan gamla bekk.

Ég flutti semsagt frá Sigló sumarið eftir 7unda bekk ´98. Leiðin lá í Mosfellsbæinn þar sem ég bý enn þann dag í dag.

Eftir Gaggó Mos fór ég í Borgarholtsskóla á Lisnámsbraut (margmiðlunarhönnun). Sú braut tók 3 ár og ég bætti við einu ári til að fá titilinn "Stúdent". Eftir stúdentinn fór ég til Danmerkur og var au pair þar í hálft ár hjá dönskum þingmanni og frú.Mjög skemmtilegur tími þar sem maður hafði mikinn tíma fyrir sjálfan sig.

Þegar ég kom aftur heim á klakann var ég svolítið áttavilt og vissi ekkert hvað ég átti að fara að gera. Ég vissi bara að ég nennti alls ekki fara aftur í skóla strax. Ég prófaði að vinna í Vero moda í einn dag,fílaði það ekki. Vann þá í tvær vikur á röntgendeild Landspítalans,fílaði það ekki. Endaði svo í skrifstofuvinnu hjá Atlantsolíu og er núna orðin þjónustustjóri þar.

Ég er í sambúð með Guðmanni Sveins og við vorum að festa kaup á okkar fyrstu íbúð um daginn og það er með því skemmtilegra sem ég hef gert:D Engin börn komin ennþá.

Ég er líka í fjarnámi í tækniteiknun í Iðnskólanum í Rvk og stefni á að klára það nám eins fljótt og ég get.

En þetta er svona í grófum dráttum það sem ég hef verið að bralla s.l. ár. Hlakka til að hitta alla aftur8)

Kveðja Íris Stefáns

Thumbs up fyrir þér Gunni ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Dagsetning
20. mars 2010
RSS tengill
Blogg :)